Íbúðaeigendum fækkar en leigjendum fjölgar samkbæmt nýrri könnun sem MMR birtir í dag, en þar kemur jafnframt fram að stærstur hluti leigjenda telur sig hafa öruggan leigusamning.
MMR spurði hvort þeir sem sögðust búa í leiguhúsnæði teldu sig hafa örugga leigu. Núverandi könnun var endurtekning á könnun sem áður var framkvæmd í september 2013. Þegar borin var saman húsnæðismarkaðurinn í dag og árið 2013 kom fram að færri Íslendingar búa í eigin húsnæði en árið 2013 og þeir Íslendingar sem er á leigumarkaðnum eða búa í foreldrahúsum eru aðeins fleiri þetta árið miðað við 2013.
Af þeim sem tóku afstöðu til spurningarinnar voru 69,0% sem sögðust búa í eigin húsnæði í dag samanborið við 72,0% í september 2013. Þeir sem búa í leiguhúsnæði í dag eru um 20,2% miðað við 17,7% árið 2013. Um 10,4% sögðust búa í foreldrahúsum miðað við 9,1% árið 2013.
Af þeim sem tóku afstöðu til spurningarinnar voru 69,0% sem sögðust búa í eigin húsnæði í dag samanborið við 72,0% í september 2013. Þeir sem búa í leiguhúsnæði í dag eru um 20,2% miðað við 17,7% árið 2013. Um 10,4% sögðust búa í foreldrahúsum miðað við 9,1% árið 2013.
Af þeim sem sögðust búa í leiguhúsnæði voru 41% sem töldu það mjög öruggt í dag samanborið við tæp 50% árið 2013. Um 43% töldu leiguhúsnæðið frekar öruggt samanborið við um 36% árið 2013. Ef skoðaður var samanlagður fjöldi þeirra sem töldu leiguhúsnæðið sitt vera mjög öruggt eða frekar öruggt voru það 84% sem töldu það öruggt samanborið við um 86% árið 2013. Það voru færri eða um 5% sem töldu mjög líklegt að þeir myndu missa leiguhúsnæðið sitt samanborið við um 7% árið 2013. Það voru um 11% sem töldu frekar líklegt að þeir myndu missa húsnæðið sitt samanborið við um 7% árið 2013. Þegar skoðaður var samanlagður fjöldi þeirra sem töldu mjög líklegt eða frekar líklegt að þeir myndu missa leiguhúsnæði sitt voru um 16% sem töldu það líklegt í dag samanborið við 14% árið 2013.