Eiga samfélagsmiðlar erindi í skólum?

 

Fjallað verður um áhrif samfélagsmiðla á nemendur og hvernig spjaldtölvur eru nýttar í skólastarfi í þættinum „Skólinn okkar“ sem sýndur verður klukkan 20.30 í kvöld. Rætt verður við nemendur um hvernig þeir nýta tölvur og samfélagsmiðla í náminu og kíkt í heimsókn í dönskutíma í Brekkuskóla á Akureyri þar sem spjaldtölvur eru notaðar við kennslu. Þar kemur meðal annars fram að nemendur eru oft áhugasamari þegar tölvurnar eru notaðar í kennslu og þær gagnist bæði bráðgerum nemendum og þeim sem eiga erfitt með nám.

Gestir í þættinum verða þau Örn Arnarson grunnskólakennari og Fjóla Þorvaldsdóttir leikskólakennari, en bæði hafa þau mikla reynslu af því að nota samfélagsmiðla og spjaldtölvur í störfum sínum. Þáttastjórnendur eru Margrét Marteinsdóttir og Aðalbjörn Sigurðsson.