„Vestfirðingar gagnrýna ósvífna hagsmunabaráttu auðmanna,“ segir Fréttablaðið í fyrirsögn í helgarblaði sínu 29. september 2018. Hvers konar málflutningur er það? Eigendur fyrirtækjanna sem hafa óbeint tekið Vestfirðina um borð í blekkingarskútu sína eru auðmenn af stærðargráðu sem er svo rosaleg að erfitt er að skilja eða ná utan um gróða þeirra. Stærsti eigandi Fjarðarlax hf. (og Arnarlax hf.) er norska risaeldisfyrirtækið SalMar ASA og helmingseigandi Arctic Sea Farm ehf. er risaeldisfyrirtækið Norway Royal Salmon ASA.
Og svona koma þeir málum sínum áfram: Þeir eru með menn á launum sem þeir hafa keypt til að tala sínu máli. Og það sýnir tuddaskapinn í málflutningnum hvernig málpípur þeirra stíga fram í fjölmiðlum. Menn heimta í fúlustu alvöru breytingar á lögum til þess að fá sitt fram. Er það þannig sem við viljum hafa hlutina? Að ef það hentar mér ekki þá beitum við fyrrverandi forseta Alþingis fyrir okkur, hann hefur beinan aðgang að öllu batteríinu og alþingismönnum í flokknum til þess að ryðjast í gegnum lagalegar hindranir. Menn kalla það áfellisdóm yfir Alþingi og eftirlitsstofnunum bara af því þeim tókst ekki að fá það sem þeir vonuðust eftir að fá.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2018181009865/eiga-log-ekki-ad-gilda-af-thvi-thau-henta-mer-ekki-