Kraftaverkafólk: eiga hrós skilið fyrir að bjarga 30 hvölum - „þetta er verulega mikið afrek“ - sjáðu myndirnar

Hópur sjálfboðaliða vann kraftaverk þegar tókst að koma minnst 30 grindhvölum á flot en um 50 hvalir höfðu strandað í fjörunni. Um tuggu hvalir drápust í fjörunni. Björgunarsveitir af Suðurnesjum og af höfuðborgarsvæðinu ásamt sjálfboðaliðum tókst eins og áður segir að bjarga 30. Edda Elísabet Magnúsdóttir, sjávarlíffræðingur hrósar öllu þessu fólki. Í samtali við RÚV hrósaði Edda þeim sem komu til bjargar og:

„Þetta er verulega mikið afrek.“

Þá sagði Edda að skipti máli hvaða dýrum sé bjargað fyrst. Fyrst þarf að huga að kvendýrum. Edda segir:

„Ef þú tekur kálfana fyrst þá koma þeir aftur því þeir fara ekki án mæðra. Kvendýrin stýra hverri fjölskyldueiningu.“

Það var á tíunda tímanum í gærkvöldi sem óskað var eftir aðstoð björgunarsveita. Þá þegar hafði fjöldi manns, sjálfboðaliðar reynt að koma hvölum á flot. Það er þó ekki hlaupið að því þar sem fullorðin dýr geta verið allt að tonn að þyngd. Þá geta hvalirnir borið í sér vírus sem smitast getur yfir í menn. Björgunarsveitarmenn notuðu dælur til að kæla hvalina og halda þeim rökum. Fjöldi fólks var á svæðinu og vildu margir hjálpa til en fengu ekki, þar sem verið var að fylgja eftir nýju verklagi þegar kemur að björgun hvala.

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"