Eiga frekar að læra

Opnun Costco í næsta mánuði mun breyta miklu, Íslendingar munu ekki hafa séð annað eins hér á landi, segir formaður Neytendasamtakanna, Ólafur Arnarsson sem mætir til Lindu Blöndal á Þjóðbraut á skírdag.  Við spyrjum hvaða breytingar verða á markaði við komu svo stórrar verslunar? Hver verða áhrif á aðrar verslanir og stöðu neytenda? Ólafur segir einnig um umdeilda auglýsingu Íslandsbanka þar sem höfðað er til yngri kynslóðar um að spara fyrir fasteign, að bankinn hafi mislesið viðhorf almennings til bankanna. Í auglýsingunni segir:  Ekki gefast upp. Það er hægt. Ef þú hefur plan.

„Þeir hefðu frekar átt að senda þau skilaboð um að þeir vildu fá leiðbeiningar frá almenningi um hvernig þeir gætu gert betur, hvernig þeir gætu lært að gera betur“, segir Ólafur. 

Þjóðbraut er á dagskrá á milli 21 og 22 og svo endursýnd. Einnig á tímaflakkinu.