Eiður smári fyrsti gestur nýs þáttar

Eiður Smári Guðjohnsen er fyrsti gestur nýs þáttar sem hefur göngu sína á Hringbraut annaðkvöld, en þar er á ferðinni fótboltaþátturinn 433 sem framvegis verður vikulega á dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar á miðvikudagskvöldum. Þáttastjórnendur 433 eru nýkomnir frá Bretlandseyjum þar sem þeir tóku hús á fjölda íslenskra atvinnumanna í knattspyrnu sem er að gera garðinn frægan hjá liðum sínum í efstu og næstefstu deild þeirrar íþróttar sem nýtur langmestra sjónvarpsvinsælda í heiminum í dag.


Meðal viðmælenda þáttarins á næstu vikum, auk Eiðs Smára, eru landsliðsmenn á borð við Gylfa Þór Sigurðsson, Aron Einar Gunnarson, Jóhann Berg Guðmundsson og Kára Árnason.


Með sýningu þáttanna 433 er stigið nýtt skref í stuttri sjónvarpssögu Hringbrautar sem hóf göngu sína fyrir hálfum öðrum mánuði. Þátturinn markar upphafið að nýrri sókn stöðvarinnar á sjónvarpsmarkaði, en á næstu dögum bætist við annar klukkutími af frumsýndu íslensku efni á dagskrá stöðvarinnar alla virka daga sem varir frá 20.00 til 22.00, en allir nýir þættir kvöldsins eru svo endursýndir hvert kvöld á milli 22.00 og 24.00 og loks á völdum tímum daginn eftir, svo sem sjá má á dagskrársíðum dagblaðanna og á forsíðu vefjarins hringbraut.is.    


Umsjónarmaður 433 er Hörður Jónsson, en þættirnir eru unnir í samvinnu við 433.is. 


Horfðu á klippu úr þættinum hér: