Alþingismaðurinn Össur Skarphéðinsson var lengi vel orðaður við forsetaframboð en hann tekur varla sporin í þeim darraðardansi sem framundan er á Bessastaðaballinu úr því sem komið er.
Hann veltir meira að segja upp þeirri spurningu á Faceboook-vegg sínum hvort kokkurinn Magnús Ingi Magnússon, betur þekktur sem Maggi á Texasborgurum, sé ekki rétti maðurinn í embættið og spyr:
„Myndi ekki Maggi kokkur smellpassa á Bessastaði? Hann gæti eldað sjálfur í veislunum og sparað þjóðinni stórfé...“
Eiður Guðnason, sem gegndi embætti umhverfisráðherra á undan Össuri árin 1991-1993 og varð síðar sendiherra, gerir athugasemd við þessa hugmynd Össurar og vísar til þess að maturinn í utanríkisráðuneytinu var víst ekkert sérstaklega góður á meðan Maggi kokkur sá um eldamennskuna og mötuneyti hjá ríkisstofnunum.
„Það var víst fyrir þína daga, að hann sá um mötuneytið í utanríkisráðuneytinu, - annars hefðirðu ekki lagt þetta til, félagi!!!!“
Össur svarar að bragði: „Eiður þó! - Svona talar maður ekki um forsetaframbjóðanda.“ Mögulega vegna þess að hann hafi aðra eða enga reynslu af mötuneytismat frambjóðandans glaðbeitta.