Eiður gagnrýnir gylfa arnbjörns

Eiður Svanberg Guðnason, fyrrum þingmaður Alþýðuflokks og sendiherra segir að sér blöskri að hafa hlustað á Gylfa Arnbjörnsson forseta ASÍ í fréttum Stöðvar tvö í gærkvöld þegar hann \"eignaði ASÍ einu og eingöngu, byggingu verkamannabústaðanna við Hringbraut\" eins og sendiherrann fyrrverandi orðar þar á eigin fébók.
\"Það var fyrir forgöngu Alþýðuflokksins að lög um verkamannabústaði voru samþykkt á Alþingi 1929.Þá voru Alþýðuflokkurinn og Alþýðusambandið sama stofnunin. Þegar forseti ASÍ orðar þetta eins og hann gerði í fréttum áðan, án þess að nefna Alþýðuflokkinn, finnst mér það persónulega vera óskammfeilin tilraun til þess að reyna breyta sögunni, endurskrifa söguna. Það getur Gylfi Arnbjörnsson ekki gert. Sagan stendur. Það gera verk Alþýðuflokksins og foringja hans á Alþingi líka,\" skrifar Eiður.

Kannski segja lokaorð Eiðs eitthvað um mat hans á Samfylkingunni nú sem mjög berst í bökkum. \"12. mars næstkomandi eru 100 ár liðin frá stofnun Alþýðuflokksins. Alþýðuflokkurinn er enn til. Laugardaginn 5. mars verður aldarafmælis Alþýðuflokksins minnst á hátíðarfundi í Iðnó.\"