Egill um hinn braskvædda húsnæðismarkað: „hugsanlega skot langt yfir markið“

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason tekur húsnæðismarkaðinn í Reykjavík fyrir í nýjum pistli sínum sem birtist á Eyjunni í dag. Tilefnið er umfjöllun The Economist um húsnæðismarkað á Vesturlöndum.

„Úr nokkuð óvæntri átt, í tímaritinu The Economist – sem er ekki laust við að aðhyllist kapítalisma – kemur umfjöllun um húsnæðismarkaðinn á Vesturlöndum þar sem segir að hann sé í raun ein stór mistök, stærstu mistökin í hagkerfinu. Húsnæðismarkaðurinn sé dragbítur á hagvöxt, hann sé óréttlátur og eyðileggi tiltrúna á kapítalisma,“ segir Egill í pistlinum.

 Í greininni sé fjallað um hversu erfitt sé fyrir ungt fólk og vinnandi, sem þarf að komast inn í borgir til starfa, að eignast húsnæði á viðunandi stað. „Um endalaust brask með húsnæði, óeðlilegar verðhækkanir, drápsklyfjar húsnæðislána, og svo eldra fólk sem hefur eignast húsnæði á góðum tíma, haft af því óeðlilegan ábata þegar húsnæðisverð hækkar (windfall) en ástundar harðan NIMBY-isma gegn því að byggt sé fyrir útsýni þess,“ segir hann. „Þannig standa þeir sem hafa komið sér vel fyrir á húsnæðismarkaðnum í vegi hinna sem ná ekki fótfestu þar – og það sé ekki byggt nóg af húsnæði.“

Hann segir Þýskaland tekið sem dæmi um stað þar sem leigumarkaður er mjög virkur og þróaður og þar sem hækkanir á húsnæðisverði hafa ekki verið eins miklar og annars staðar. „Það er tæpt á því að inngrip ríkisvaldsins í húsnæðismarkaðinn, skattaafslættir og ívilnanir, geti haft þau áhrif að húsnæðisverð hækki einfaldlega enn meira.“

„Það er margt umhugsunarvert í þessu fyrir okkur hér á Fróni. Til dæmis má nefna Hafnartorg og íbúðir víða sem eru auglýstar sem lúxus og ætlunin er að selja á háu verði,“ heldur Egill áfram. „Sú tilfinning ágerist að hugmyndin bak við þetta sé sú að kaupendurnir yrðu mestanpart erlent fólk sem vill festa fé sitt í húsnæði – fremur en til dæmis verðbréfum. Þetta er eitt einkenni hins braskvædda húsnæðismarkaðar, en virðist hugsanlega hafa verið skot langt yfir markið hér í Reykjavík.“