Egill þór: „það blasir við að kostnaðurinn við þessar framkvæmdir getur rokið upp úr öllu valdi“

Egill Þór Jónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að kostnaður vegna breytinga á fráveitulögn, sem liggur undir fyrirhugaðri byggingu Aldin BioDome í Elliðarárdalnum, muni kosta útsvarsgreiðendur í Reykjavík allt að 429 milljónir króna. Fráveitulögnin flytur skólp frá Árbænum, Norðlingarholti og Breiðholti. Fréttablaðið greinir frá þessu

Áætlað er að 4500 fermetra bygging verði byggð á svæðinu, Í minnisblaði sem verkfræðistofan Verkís gerði fyrir Veitur vegna fyrirhugaðra framkvæmda segir að núverandi lögn sé hálfrar aldar gömul og þoli illa rask af framkvæmdum eins og eru áætlaðar. Verði því að færa fráveitulögnina áður en framkvæmdir geta hafist.

„Ef breyta á legu lagna vegna breytinga á skipulagi greiðir borgin kostnaðinn sem af hlýst, nema þegar lagnirnar eru gamlar, þá greiða Veitur 56 prósent. Veitur eru í eigu borgarinnar og því mun kostnaðurinn alltaf á endanum lenda á útsvarsgreiðendum,“ segir Egill 

Egill Þór segir að borgaryfirvöld hafi sagt að enginn kostnaður myndi lenda á Reykjavíkurborg vegna framkvæmda á Aldin Biodome í Elliðarárdalnum.

„Það blasir við að kostnaðurinn við þessar framkvæmdir getur rokið upp úr öllu valdi. Meirihlutinn hefur sagt um þessar framkvæmdir að enginn kostnaður leggist á borgina, það er bara rangt. Þetta getur farið yfir hálfan milljarð.“