Egill í mannamáli: þátturinn lengdist!

Listamaðurinn fjölhæfi, Egill Ólafsson fór á kostum í viðtalsþættinum Mannamál á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld, en þar fór sagnameistarinn á skeið svo um munaði.

Samtal þeirra Sigmundar Ernis, sem hægt er að skoða hér á vef stöðvarinnar, er hispurslaust og skemmtilegt í meira lagi, en lýsingar Egils úr æsku sinni eru ekki einasta dásamlegar heldur og ekki síður þær hinar meiri þegar kappinn var orðinn kunnur á sviði.

Frægust er þar Norðfjarðarsagan sem tekur dágóðan part úr þættinum, en að sögn Sigmundar Ernis hefur lengri saga ekki verið sögð af meira listfengi í þáttum hans sem eru þó orðnir æði margir á 30 ára sjónvarpsferli. Þátturinn lengdist meira að segja við söguna, fór yfir hefðbundna 30 mínútna lengd sína, en auðvitað varð sagan að fá að njóta vafans.

Þá er heldur ekki ónýtt að fylgjast með Agli rifja það upp þegar hann fann músíkina koma til sín á barnsaldri, en þar brestur hann í söng eins og honum er einum lagið - og vekur nokkra athygli að það var Harry Belafonte sem kom honum ungum á bragðið.

Sagnameistarinn sest andspænis Sigmundi Erni í Mannamáli á miðvikudags, en þá verður þátturinn endursýndur. Þar mun engum leiðast.