Egill segir Íslendinga ekki eiga tilkall til að fá fyrstir bólusetningu

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason varpar því fram á Facebook-síðu sinni að hann fái ekki séð að Íslendingar eigi sérstakt tilkall til að vera á undan öðrum þjóðum varðandi bólusetningu við Covid-19.

„Auðvitað væri gott að fá bólusetningu sem fyrst. En þetta tal um okkur og bólusetninguna – það er svolítið eins og það byggi á gömlu hugmyndinni að Íslendingar séu nú svo sérstök þjóð og eigi þetta einhvern veginn frekar skilið en aðrir...,“ skrifar Egill.

Hann segir það hafa sýnt sig að með góðu skipulagi og innviðum þá geti Íslendingar haldið faraldrinum í skefjum. „Margar þjóðir hafa þurft að grípa til miklu harðari aðgerða. Nú er ástandið hér gott meðan neyð ríkir víða annars staðar– við eigum að geta haldið því þannig með því gæta landamæranna vel. Þar finnst manni reyndar að pólitíkin dragi aðeins lappirnar “ skrifar Egill.

Taka fjölmargir undir skrif hans og þar á meðan fyrrum þingkonan Margrét Tryggvadóttir sem segir að það sé siðferðislega varasamt að bólusetja heila þjóð á undan öðrum sem sé í þeirri stöðu að eiga betri möguleika á að halda faraldrinum niðri.

Þetta er kannski ekki vinsæl skoðun en ég fæ ekki séð að við Íslendingar eigum sérstakt tilkall til að vera á undan...

Posted by Egill Helgason on Þriðjudagur, 12. janúar 2021