Útvarpsstöð Áttunnar fór í loftið klukkan 18 í dag – föstudaginn 12.maí.
Stöðin er á FM 89,1 og dagskrá og tónlist verður alla daga vikunnar, allan sólarhringinn
Egill Ploder verður alla virka daga frá 10 til 14 við hljóðnemann. Egill fær til sín tónlistarmenn sem flytja nýtt efni í beinni, tekur púlsinn á helstu samfélagsmálum með góður gestum.
Ragga Holm tekur við á milli 14 til 16 með fræðandi dagskrá um tónlist – til Röggu koma tónlistarmenn sem flytja nýtt efni.
Gulli klárar daginn frá 16 til 18 – „Hann þorir meðan aðrir þegja“ er mottó þáttarins með Gulla sem tekur fyrir hitamál líðandi stundar með gestum. Gulli flytur hlustendum líka 50 vinsælustu lögin í dag.
Áttan er útvarpsstöð sem sendir þér efni sem þú hefur ekki heyrt áður.