Egill ólafsson í smakk / takk

Önnur eins gróska hefur varla sést á Íslandi. Veitingageirinn blómstrar og dafnar, úrvalið er endalaust og við státum okkur á því að vera sérstaklega framarlega í góðri matseld. Miðbærinn iðar af menningu og lífi og við förum oftar en áður og gerum okkur glaðan dag með góðri máltíð. 

\"\"

Hins vegar eru nokkrir rótgrónnir staðir sem eiga sérstakan stað í hjörtum landans og er óhætt að segja að allir þekki Kaffivagninn. Kaffivagninn var stofnaður árið 1935 og stóð þá á Ellingsen planinu vörubíll með yfirbyggðum palli þar sem matur var seldur út. Þó svo staðurinn sé ekki lengur vörubíll hefur Kaffivagninn verið í núverandi mynd frá 1975 á grandanum og segja má að ákveðin tryggð ríki hjá viðskiptavinum sem margir hverjir hafa komið daglega í áratugi til þess að sötra á kaffi og narta í kleinu, rökræða um pólítík og hneykslast á flotakerfinu. 

Kaffivagninn hefur nýverið fengið smá upplyftingu og segja má að sjávarseðillinn sé algjörlega meiriháttar - að sögn Egils Ólafssonar sem snæddi með mér í hádeginu á dögunum. Egill hefur sínar sögur að segja af sjónum en Egill fór með afa sínum á stutta túra einungis 3ja ára pjakkur, í beysli sem var bundið við vélarhúsið. Aldrei var hann sjóveikur og sagði hann mér að hafið hafi alltaf heillað hann síðan enda eiga Egill og konan hans, Tinna Gunnlaugsdóttir 93 ára gamla skútu og njóta lífsins á siglingu um höfin blá. 

Það var skemmtileg stund með Agli á Kaffivagnunum og einstaklega skemmtilegt að hlusta á sögurnar hans. 

\"\"

 Hægt er að horfa á þáttinn hér.

***Snædís***