Í bók Einars Kárasonar, Málsvörn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, segir að Davíð Oddsson hafi lofað Páli Magnússyni stöðu útvarpsstjóra. Því hefur Páll hafnað í samtali við Vísi. Jóhann Hauksson, fyrrverandi fréttastjóri, rifjaði upp við tilefnið kafla úr bók sinni Þræðir valdsins frá árinu 2011 þar sem sagt var að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, hafi reynt að fá Þorstein Pálsson í stöðuna.
Líflegar umræður sköpuðust undir færslu Jóhanns á Facebook. Mættu þar kanónurnar Egill Helgason og Gunnar Smári Egilsson, báðir fjölmiðlamenn til áratuga.
„Páll var náttúrlega mjög hæfur í þetta embætti eftir langan feril í fjölmiðlum. Hann var flæmdur af Stöð 2 þegar allt ruglið upphófst þar í kringum NFS og fleira. Páll varaði við öllu því bixi og hafði auðvitað rétt fyrir sér. Ég á voða erfitt með að sjá að eitthvað bogið hafi verið við ráðningu hans,“ sagði Egill. Svaraði þá Jóhann honum:
„Árið 2005 kom meira að segja frá ráðuneyti Þorgerðar að reynsla af fjölmiðlarekstri skipti mestu við ráðningu útvarpsstjóra. Í ársbyrjun 2014 skipti mestu máli að menn hefðu reynslu af rekstri leikhúsa við ráðningu í stöðu útvarpsstjóra. Sex árum síðar fannst stjórnvöldum að mestu máli skipti skipti reynsla af lögreglumálum við ráðningu útvarpsstjóra. Kantu annan Egill?“
Egill sagði þetta útúrsnúning: „Ætlarðu líka að fara klína einhverju spillingarorði á Magnús Geir og Stefán? (Um Pál má reyndar segja að hann stóð þétt að baki fréttahluta RÚV og þeim hluta sem laut að þjóðmálaumræðu – hann hafði hins vegar minni áhuga á útvarpshlutanum sem var kannski svolítill ljóður á ráði hans.). Páll var reyndar fyrsti útvarpsstjórinn sem hafði einhverja alvöru fjölmiðlareynslu en hann hafði líka reynslu af rekstri – í seinni tíð virðist hið síðastnefnda vera orðið höfuðatriði í ráðningu útvarpsstjóranna.“
Þá mætti Gunnar Smári og sagði: „Fyndið að lesa hér húskarla borgarastéttarinnar mæra þá yfirboðara sem flokkurinn sendir þeim hverju sinni.“
Varð þessi athugasemd að miklum deilum milli Egils og Gunnar Smára. „“Húskarla borgarastéttarinnar“ – æ slakaðu nú á Smári. Þú varst sjálfur aðalhússkarlinn hjá Jóni Ásgeiri. Eða kannski voruð þið báðir frekar eins og „nýríki Nonni“ en „borgarastétt“?,“ sagði Egill.
Gunnar Smári sagði þetta heimskulega athugasemd. „Þú ert orðinn að Hannesi Hólmsteini, hann bætir yfirleitt við að ég hafi gengið í menningarfélag múslima þegar Framsóknarflokkurinn í Reykjavík gekk lengst í árásum á múslima.“
Egill sagði að Gunnar Smári hafi valkvætt minni: „Vendu þig svo á tala við fólk með aðeins meiri kurteisi, minna yfirlæti, held þú komir skilaboðum þínum betur á framfæri þannig og kemst jafnvel á þing. Bestu kveðjur, þinn gamli vinur. Hannes Hólmsteinn.“
Frosti Logason, útvarpsmaður á X-inu, fylgdist með umræðunum af lotningu: „Ja hérna hér. Mér líður eins og leikskólastrák sem horfir í gegnum grindverkið á stóru strákana taka slag fyrir utan skólalóðina. Pínu brugðið en fullur lotningar.“