Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, segir að stjórnarmyndunarumboð sé aðeins goðsögn. „Það er kannski svolítið bratt af mér að segja það, hafandi verið forseti í 20 ár, en þetta með umboðið er í raun og veru goðsögn. Umboðið á sér enga stjórnskipulega festu. Það er bara venja sem flokksforingjarnir hafa ákveðið að virða og forsetinn reynt að praktisera,“ sagði hann í viðtali við RÚV.
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður segir að það sé einmitt aðeins samkvæmisleikur:
„Enginn flokksformaður þarf á fund forseta til að fá umboð til stjórnarmyndunar. Slíkt er aðeins samkvæmisleikur fyrir fjölmiðla. Spörum þessi óþarfa spor í nafni umhverfisverndar.“
Samfélagsrýnirinn Egill Helgason kom í kjölfarið með áhugaverða kenningu. „Það er meira að segja ekki óhugsandi að einhverjir flokksforingjanna séu þegar búnir að tala saman.“