Egill helgason vill að fólk hugsi um lúxusinn sem það býr við

Sjón­varps­maðurinn Egill Helga­son skrifaði á Eyjuna í dag um heita­vatns­leysið í vestur­borginni í gær. Hann segir að fólk þurfi að hugsa um þægindin sem það býr við, að hafa hita, vatn og rafmagn.

Egill segir frá því að kalt hafi verið orðið í húsinu hans, en að honum finnist hann hálf­partinn hafa verið svikinn af því hversu hratt við­gerðin gekk fyrir sig.

„Manni finnst næstum að maður hafi verið svikinn um eitt­hvað-“ skrifar Egill, „pínu­lítið sýnis­horn af ham­förum sem þjappar fólki saman, svona eins og þegar maður var barn og raf­magnið fór af fyrir jólin.“

Hann hafi verið búinn að taka fram raf­magns­ofna, teppi og kakó sem hafi svo reynst ó­þarfi, þar sem heita­vatns­leysið hafi ekki varað jafn lengi og við hafði verið búist.

Tóku sauði með sér upp í rúm

Hann segir að fólk megi hugsa meira til þess hversu mikill lúxus það er að hafa rennandi vatn, hita og raf­magn. „En þegar það hverfur skekur það nánast til­veru okkar.“

Fyrr á öldum hafi það eitt að ná í vatn verið mikil vinna og Ís­lendingar hafi búið við kulda og bleytu. „Það þekktist meira að segja að taka sauði með sér í bólið til að hafa úr þeim hitann.“

Hiti, rafmagn og rennandi vatn sé því ekki eins sjálfgefið og við höldum stundum.