Sjónvarpsmaðurinn góðkunni Egill Helgason hefur sagt upp áskrift sinni að streymisveitunni Spotify. Egill greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni í dag og sagði:
„Þá er ég búinn að segja upp Spotify og fjarlægja úr síma og tölvu. Er með Apple Music og bæti nú við Tidal. Vonandi sýnir þetta að tónlistarmenn geti breytt starfsumhverfi sínu með því að brýna raustina – og kannski standa saman.“
Með færslunni birtir hann graf sem sýnir greiðslur til tónlistarmanna frá ýmsum streymisveitum en þar kemur skýrt fram hversu lítið Spotify borgar til tónlistarmanna fyrir streymi af tónlist þeirra.
Styr hefur staðið um Spotify undanfarna daga eftir að tveir heimsþekktir tónlistarmenn, þau Joni Mitchell og Neil Young, kröfðust þess að öll tónlist þeirra yrði fjarlægð af streymisveitunni. Ku þetta hafa verið gert í mótmælaskyni við hlaðvarpsstjórnandann Joe Rogan sem hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að dreifa misvísandi upplýsingum um bóluefni í þáttum sínum.
Ljóst er að ákvörðun Egils um að hætta á Spotify tengist þessum málum en hann segir þó það ógeðfelldasta í málinu vera einokunarstöðu sænska tónlistarrisans á tónlistarmarkaði.
„Það sem er ógeðfelldast í þessu er einokunarstaða Spotify, hvað þeir borga tónlistarmönnum miklar smánarupphæðir meðan þeir geta borgað manni eins og Rogan griðarlegar fjárhæðir fyrir rövl sitt. Og ég sem hélt að þetta væri tónlistarveita. Þetta passar bara ekki. Svo er þetta bara hollt held ég, maður fer í aðra veitu og hún er öðruvísi uppsett og maður fer kannski að hlusta á nýja tónlist - ekki bara gömlu playlistana.“