„Fólk sem jafnvel aldrei kemur í Miðbæinn í Reykjavík er stórhneykslað á því að standi til að rukka bílastæðagjöld fram á kvöld og á sunnudögum. Þetta er haft til marks um hvað borgin komi hræðilega illa fram við einkabílinn.“
Þannig hefst pistill eftir Egil Helgason á Eyjunni. Egill sem sjálfur er búsettur miðsvæðið er sáttur við þessa ákvörðun. Ástæðan er einföld, hann segir að á kvöldin og um helgar fyllist miðbærinn af bílaleigubílum.
„Það eru dæmi um að heilu göturnar séu undirlagðar af þeim. Þegar rukkað er fyrir stæði leita ferðamenn sem eru í bílaleigubílum oft annað. Þetta teppir aðgengi þeirra sem hyggjast til dæmis fara á veitingahús eða vilja versla í Miðbænum. Og fyrir íbúana er þetta hvimleitt.
Þess vegna er ágætt að víkka út innheimtu bílastæðagjalda og lítil ástæða til að taka mark á þeim sem telja þessa breytingu vera „aðför að einkabílnum“.“
Þá segir Egill enn fremur:
„Reykvíkingum ætlar seint að skiljast að bílastæði eru gæði sem engin ástæða er til að úthluta ókeypis – ekki fremur en til dæmis íbúðum eða verslunarplássi. En bílastæði eru ekki einu sinni dýr í Reykjavík – ekki miðað við til dæmis hið mikla bílaland Bandaríkin þar sem maður getur átt í mestu brösum með að finna stæði í borgum, miklar takmarkanir eru hvar maður má leggja, mörg stæði eru frátekin fyrir íbúa, og bílastæðin geta verið rándýr.“