Egill: „Blóðugt að þessir peningar fari úr landi“ – Fólk noti frekar síma eða tölvu­póst

Egill Helga­son fjöl­miðla­maður segir að Ís­lendingur ættu frekar að nota síma eða tölvu­póst en vef­síður á borð við Booking þegar þeir bóka ferðir hér­lendis.

Þetta sagði Egill í færslu á Bak­landi ferða­þjónustunnar um helgina. Þar var til um­ræðu frétt Morgun­blaðsins frá því á laugar­dag, en í henni kom fram að Ferða­mál­stofa þyrfti að eyða gríðar­legum fjár­munum til að fá aug­lýsingar sínar ofar en aug­lýsingar Booking.com og sam­bæri­legum bókunar­vélum á leitar­vél Goog­le.

Eins og komið hefur fram hyggst Ferða­mála­stofa eyða tals­verðum fjár­hæðum í aug­lýsinga­kaup hjá er­lendum miðlum en á­takið miðar að því að hvetja Ís­lendinga til að ferðast innan­lands.

Í frétt Morgun­blaðsins var rætt við Her­mann Vals­son, ferða­mála­fræðing, sem hefur rann­sakað bókunar­vefi á borð við Booking. Hann segir að þegar fólk bókar í gegnum Booking fari 22 til 26% greiðslunnar í vasa Booking.com. Taldi hann að Ferða­mála­stofa ætti að gera það sem hún getur til að að­stoða Ís­lendinga við að bóka beint hjá ferða­þjónustu­aðianum en ekki í gegnum bókunar­vélar.

Egill tekur undir þetta og segir „blóðugt að þessir peningar fari úr landi vegna ferða­laga Ís­lendinga á Ís­landi.“ Hann segist mæla með að fólk noti frekar síma eða tölvu­póst í staðinn fyir Booking. „Eða bóka beint á net­síðum hótela og gisti­húsa þar sem hægt er. Við eigum ekki að fóðra þennan milli­lið,“ segir hann.