Eggert Gunnþór snýr aftur til starfa hjá FH

Eggert Gunnþór Jónsson fær að snúa aftur til starfa sinna sem leikmaður og þjálfari hjá FH í Hafnafirði. Það tilkynnti félagið á síðu sinni í gær.

Á föstudaginn var greint frá því að héraðssaksóknari hefði látið niður falla kynferðisbrotamál sitt á hendur Eggerti og Aroni Einari Gunnarssyni en þeir voru báðir sakaðir um að hafa nauðgað konu í Kaupmannahöfn árið 2010.

Á vef FH segir að í samræmi við fyrri yfirlýsingar félagsins og í ljósi nýrrar stöðu í máli Eggerts þá hafi félagið ákveðið að hann megi aftur halda til fyrri starfa og verði aftur hluti af leikmannahópi félagsins.

„Félagið hefur lagt áherslu á vönduð og fagleg vinnubrögð í þessu viðkvæma máli og mun ekki tjá sig frekar um málið,“ segir að lokum.