Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, segist eiga erfitt með að verjast þeirri hugsun að alltof mikil orka fari í að ná umræðunni ofan í skotgrafir og efna til átaka í kjaraviðræðum Eflingar og borgarinnar. Borgarstjórinn tjáir sig á Facebook í dag.
„Ég á erfitt með að verjast þeirri hugsun að alltof mikil orka fari í að ná umræðunni ofan í skotgrafir og efna til átaka þar sem efnislegt samtal hefði skilað miklu betri árangri. Ég vildi óska að sami kraftur væri settur í samningagerðina og ítrekað virðist fara í skeytasendingar í minn garð og samninganefndar borgarinnar,“ skrifar Dagur.
Hann lýsir vonbrigðum með að ekki hafi náðst meiri árangur á samningafundi dagsins og lýsir furðu yfir þeirri tilraun Eflingar að „draga í efa framkomin tilboð borgarinnar um verulegar kjarabætur fyrir starfsfólk Eflingar hjá Reykjavíkurborg.“
„Getur þetta verið skýrara?“
Hann ítrekar að tilboðið sem hann setti fram í Kastljósþætti í síðustu viku, væri það sama og samninganefndin hefi sett fram, þrátt fyrir orð Eflingar um hið gagnstæða.
„Nú síðast hefur forysta Eflingar reynt að sá tortryggni um hvort tilboð Reykjavíkurborgar varðandi starfsfólk í leikskólum sé ekki það sama við samningaborðið og kynnt hefur verið opinberlega, þar með talað í Kastljós-viðtali við mig í síðustu viku. Því er einfalt að svara: að sjálfsögðu.
Tilboð borgarinnar myndi hækka meðal grunnlaun almennra starfsmanna á leikskólum úr 310 þús í 420 þús á mánuði. Ofan á þessar tölur koma álagsgreiðslur sem hafa verið greiddar á leikskólum og eiga að halda áfram og verða heildarlaun í lok samningstímans því 460 þús. á mánuði.
Þetta er gott tilboð um mikla hækkun lægstu launa sem er hér með ítrekað. Fyrir ófaglærða deildastjóra á leikskóla úr röðum Eflingar myndu grunnlaun hækka í 520 þús. að meðaltali á mánuði. Með áðurnefndum álagsgreiðslum eru heildarlaun þessa hóps 572 þús á mánuði. Getur þetta verið skýrara?“