Fjöldi maka og hjóna vilja deila lífeyrissparnaði sínum, sem er hægt skv. lögum frá 1997, en 14. grein þeirra laga kveður á um að þörf sé á að meta ástand makans til að taka á móti hluta lífeyrisgreiðslnanna. Steingerður Steinarsdóttir, ritstjóri Vikunnar, var gestur Sigmundar Ernis í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöld, þar sem hún ræddi þessi mál.
Við það að sjá spurningalista sem þarf að fylla út þegar sótt er um að deila lífeyrissparnaði milli hjóna reiddist Steingerður. „Ég varð bara rosalega reið og fúl. Þannig er að makinn minn, maðurinn minn til 40 ára, hann á mun betri lífeyrissjóð heldur en ég. Ég er alveg viss um að það eru mörg hjón í sömu stöðu. Það er auðvitað þannig að falli hann frá ótímabært þá ég ekki rétt nema á tilteknum ekknabótum og þegar þetta ákvæði kom um að hægt væri að skipta lífeyrissjóðnum á milli, þá þarf maður reyndar að gera það fyrir 65 ára aldur. Við verðum sextug í ár þannig að við ákváðum hjónin að við myndum bara gera þetta. Við fengum svo þennan spurningalista, eða heilbrigðisvottorð, sem okkar heimilislæknir ætlaði að fylla út, og þegar ég sá þær upplýsingar sem þarna var farið fram á, þá varð ég bara mjög reið,“ segir Steingerður.
Vegna ósættis síns ákvað hún að hafa samband við lífeyrissjóðinn. „Mér fannst þetta svo ónauðsynlegt, og langt gengið, svo ég hringi í lífeyrissjóðinn og fæ þar samband við ósköp kurteisan ungan mann og fer að spyrja hann út í þetta. Ég spyr hann m.a. út í það sem sló mig verst, og það er það að læknirinn þinn er beðinn um að meta það hversu þú taugaveiklaður þú ert. Ég svona spurði hann að þar sem að mér vitanlega er taugaveiklun ekki skilgreindur læknisfræðilegur sjúkdómur og ekki veitt meðferð við taugaveiklun sem slíkri, hvernig áhrif það myndi hafa ef læknirinn minn myndi t.d. dæma mig taugaveiklaða. Hann sagði að það yrði metið í hverju einstöku tilviki.“
„Hið sama gerðist þegar ég spurði hann, af því að þarna er spurt hvort að viðkomandi hafi einhvern tíma fengið þursabit eða bakverk, ég spurði hvort að þetta myndi geta hindrað það að við hjónin fengjum að skipta á milli okkar lífeyrissjóðnum okkar. Þá kom sama svarið, að það yrði metið í hvert eitt skipti, þannig að hafi ég fengið þursabit á fermingardaginn minn þá getur það hugsanlega orðið til þess að ég fái ekki að njóta fullra lífeyrisréttinda falli makinn minn frá fyrir þann tíma að við förum að þiggja lífeyri,“ bætir Steingerður við.
Viðtalið við Steingerði í heild sinni er að finna hér: