Ég varð að klára everest

Vilborg Arna Gissurardóttir, framkvæmdastjóri Tinda Travel, segir að fyrirtækið muni bjóða fjölda nýrra ævintýraferða á næstunni. Vilborg er í viðskiptaþætti Jóns G. Haukssonar, sem frumsýndur var í gærkvöld og ræðir fyrirtækið sem hún stofnaði ári eftir að hún kláraði MBA-nám sitt við Háskóla Íslands vorið 2011. Fyrsta verkefnið var ganga Vilborgar á Suðurpólinn. Þau Jón G. koma víða við í þættinum um rekstur Tinda Travel og ræða m.a. Everest-leiðangurinn á síðasta ári: „Ég leit svo á að það yrði miklu erfiðara fyrir mig að fara í gegnum lífið án þess að hafa klárað Everest.“