Ég var jesús kristur í reykjavík

Þegar maður er kominn með óskorað umboð frá guði almáttugum er auðvitað ekkert sem stoppar mann, sagði Elísabet Kristín Jökulsdóttir í eftirminnilegum þætti af Mannamáli á Hringbraut í nýliðinni viku þegar hún rifjaði upp erfiðasta skeið geðhvarfasýki sinnar.


Ella Stína, eins og hún er gjarnan kölluð sagði í Mannamáli, svo sem fram hefur komið í fyrri fréttum úr þættinum að geðsjúkdómurinn sé svo góður sölumaður að maður kaupi allt af honum; sé jafnvel tilbúinn að sn´æua baki við öllum ástivnum sínum fyrir hann eða leggja jafnvel lífið að veði til að geðjast honum. En hún lýsti svo því sem gerðist innra með henni upp úr tvítugu með mjög áhrifaríkum hætti: Pabbi hennar, sem að miklu leyti braut sjálfsmynd hennar, var nýlega fallinn frá og hugur hennar var bugaður; geðsýkin hafi komið yfir hana eins kólfi væri veifað ... "þetta var einna líkast höggbylgju," lýsir hún í viðtalinu því allt í einu hafi hún staðið á torgum borgarinnar með tveggja milljóna króna málverk eftir Kristínu Jónsdóttur undir arminum að reynt að sannfæra alla vegfarendur um heilagan sannleika almáttugs guðs. Lengi vel hafi hún verið á leiðinni upp í húsakynni Ríkissjónvarpsins til að rjúfa þar dagskrána til að hleypa að mikilvægum skilaboiðum frá guði. Hún segir meininguna með málverkið hafa verið þá að selja það hæstbjóðenda svo hún gæti flogið elskhuga sínum aftur til Íslands. Hún hafi verið jafn ástsjúk og hún var geðsjúk, ekki skilið af hverju elskhuginn hafi farið; hún væri jú svo stórkostleg, mögnuð, meiriháttar - og með umboð frá guði, takk fyrir.


Og svo hafi eitt ruglið leitt af öðru; bílnúmer hafi kallað á sannfæringu, allar þær tölur leitt hana áfram, einu sinni upp á Haðarstíg, sem var jú nafn blinda guðsins og þaðan hafi hún farið á Borgina þar sem Gísli og Arnþór voru að spila; altso blindu bræðurnir ... þetta hafi allt smollið svo auðveldlega saman; samsærið allt svo augljóst, skilaboðin frá guði svo greinanleg ...


En svo, eins og greinir frá í fyrri fréttum úr viðtalinu hér á hringbraut.is greip mamma hennar inn í og svipti Ellu Stínu sjálfræði og kom fyrir á Kleppi, dótturinni til mikils léttis þegar hún horfir til baka.


Sjá má allt viðtalið og klippur úr því á hringbraut.is, en tekið skal fram að það er vart fyrir börn eða viðkvæma .