\"Það er til umhugsunar hvað skattkerfið er að draga úr hvata til vinnu,\" skrifar Katrín Kristjana Hjartardóttir, nýjasti pistlahöfundur Hringbrautar og jafnframt sá yngsti, en hún mótmælir því að hún tilheyri aumingjakynslóðinni. Jafnaldrar hennar vilji vinna, en skatturinn letji þá til þess.
\"Hér vil ég benda á Lánasjóð Íslenskra Námsmanna sem dæmi,\" skrifar hún og bætir við: \"LÍN hefur þann rétt að skerða til þín lán ef tekjurnar á árinu verða of háar. Þetta er nokkuð skrýtin hugsun; því duglegri sem þú ert að afla þér tekna, því minna lán færðu,\" bendir hún á og spyr: \"Er það vald lánasjóðsins að ákveða hversu mikið lán þú átt skilið.\"
Hún skilur ekki svona kerfi: \"Þessi skerðing lána er álíka léleg eins og ef þeir launahærru fengju meira, þar sem þeir væru líklegri til að geta greitt meira til baka,\" skrifar Katrín Kristjana og skilur ekki af hverju fólk sem tekur lán geti ekki og megi ekki afla sér almennilegra tekna til að geta greitt það niður: \"Auðvitað á að vera hvatakerfi fyrir alla, alveg sama þótt að það séu við unga fólkið eða aðrir,\" bendir hún á.
\"Þetta leiðir til þess að fólk gefur meira af sér, það vinnur meira og það á meira,\" skrifar unga konan og skammar kerfið sem hún telur úr takti við venjulega mannasiði: \"Tel ég mig ekki þurfa neina gráðu í því að ala upp börn til þess að halda því fram að það er jákvætt að verðlauna börnin sín, afhverju gerir kerfið það þá ekki,\" spyr hún og bætir við: \"Meira segja jólasveininn sjálfur verðlaunar þá sem góðir eru.\"
Niðurstaða hennar er þessi. \"Ég er orðin þreytt á að vera kennd við aumingjakynslóðina, við unga fólkið erum hörku dugleg en við lifum í samfélagi sem sér einungis það sem má lasta en ekki lofa.\"