Það skortir ekki sögurnar sem flakka í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut þessa vikuna en þar sest tónlustargoðsögnin Eyjólfur Kristjánsson í plussstólinn gegnt Sigmundi Erni og fer yfir ferill sinn af einlægni og hispursleysi. Þáttinn má nú sjá hér á vef stöðvarinnar.
Hann kveðst hafa fæðst með silfurskeið í munni, sonur stórkaupmannsins í Vogunum og yngstur sex systkina - og þar af leiðandi ofdrekraður fram eftir aldri. Strax um fermingu tilkynnti hann foreldrum sínum, þeim til undrunar, að hann ætlaði að gerast tónlistarmaður að ævistarfi, en nokkrum árum áður hafði hann farið í sveit í Ölfusi til móðursystur sinnar, hverrar synir kenndu honum á gítarana á staðnum - og teningunum var kastað.
Öll sumrin á táningsaldri og langt fram eftir fullorðinsárum starfaði hann í Kerlingafjöllum, fyrst sem lyftuvörður en síðar sem skíðakennari, en þar harðnaði hann og skólaðist til í spilamennskunni og söngnum á rómuðu kvöldvökunum á staðnum sem skapaði honum nokkurt forskot á sviðinu þegar þátttaka í hverri hljómsveitinni af annarri hófst á þrrítugsaldrinum; fyrst með Hálft í hvoru og svo með Bítlavinafélaginu, en sú grúppa sló svo rækilega í gegn að Eyvi varð landsfrægur á einu kvöldi. Hann kveðst þó aldrei hafa lent á refilstigum óreglunnar, kannski vegna þess að grunnur hans í sportinu var svo sterkur, en öðru máli gegndi um kvensemina: \"Mér hélst ekkert á kærustum,\" segir hann í þættinum \"og ein ástkvenna minna á þessum árum orðaði það sennilega alveg rétt; ég væri mjög gallaður kvennamaður.\" Og hann viðurrkennir að hann hafi átt erfitt með vera konum trúr, altént lengi framan af - og jafnvel hjónaband sitt til síðustu fimmtán ára hafi hann reynt af fremsta megni að eyðileggja, en þa hafi blessunarlega ekki tekist - og hann sé hamingjusamlega kvæntur maðurinn í dag.
Dásamleg er lýsing hans á einni fyrstu frægðarförinni til Akureyrar þar sem skvísurnar, æstar í nýju stjörnuna, héldu að hann héti Bóas - og reyndu allt hvað af tók að vekja hann á beddanum á gistiheimilinu úti í Þorpi með því fáránlega nafni! Og svo fylgja auðvitað sögur af tilurð helstu laga hans, sem mörg hver lifa svo ríkt með þjóðinni að þau koma fyrst upp í hugann þegar slegið er í taktinn á mannamótum.
Mannamál eru frumsýnd öll fimmtudagskvöld klukkan 20:30.