Leikarinn og leikstjórinn Baltasar Kormákur kom til dyranna eins og hann er klæddur í einkar persónulegu viðtali í þættinum Mannamál á Hringbraut í gærkvöld þar sem hann ræddir bæði hæðir og lægðir á lífsvegi sínum. Þátturinn er endursýndur á stöðinni í dag og um næstu helgi.
Nýjasta kvikmynd hans, Eiðurinn er nú í sýningu í helstu kvikmyndahúsum landsins, en henni hefur verið afar vel tekið og fékk hún meðal annars fullt hús stiga í bíódómi Morgunblaðsins í vikunni. Hún fjallar um lækni sem grípur til örþrifaráða þegar dóttir hans lendir í klóm siðblinds undirheimaforingja, en aðspurður í þættinum kveðst Baltasar vera hræddastur við þann hluta eigin persónuleika þegar kemur að aðstæðum sem þessum; blóðheitur frummaðurinn í honum myndi örugglega brjótast út með afleiðingum sem hann sjálfur gæti ekki séð fyrir.
Hann er jafn katalónskur og hann er íslenskur og þótt hann geti vissulega verið blóðheitur segist hann hafa róast með árunum; að innan sé hann algerleg lopapeysa og kunni best við sig úti í óspilltri náttúrunni, rétt eins og pabbi hans sem sé orðinn miklu meiri Íslendingur en margur innfæddur eyjarskegginn.
Baltasar ræðir af hispursleysi um þann andbyr sem hefur verið honum hvað erfiðastur, en um og upp úr þrítugt hafi partíljónið sem hann hafi verið kallaður á þeim tíma verið farinn að taka helst til fast á flöskunni. Hann hafi smám saman verið að breytast í alkóhólista - og í reynd hafi áfengið verið leið hans til að viðra vonda karlinn í sér. Hann hafi verið kominn á fremsta hlunn með að eyðileggja hjónabandið þegar hann stóð eitt sinn með Lilju sinni Pálmadóttur á rauða dreglinum úti í heimi og fundið þar mörkin; blossar ljósmyndavélanna hafi vakið hann til umhugsunar um hvað harmur hans að baki brossins var augljós - og þarna hafi þau staðið, bæði jafn óhamingjusöm, frammi fyrir kastljósi fjölmiðlanna. Á þessu augnabliki hafi hann fattað af hverju margt af Hollywood-liðinu líti svona illa út; það sé alltaf að feika brosið. Þarna hafi hann áttað sig á því að hann væri að breytast í ógeð, akkúrat það sama pakk og væri alltaf að þykjast vera hamingjusamt á stóra sviðinu. Svo hafi hann bara hætt að drekka.
Það er heillandi að heyra og sjá lýsingar Baltasars á hlutskipti og hlutverki leikstjórans, en meðal annars eru frásögn hans af upptöku myndarinnar Everest kostuleg, en þar hafi hann þurft að vera allt í senn faðir harðfullorðinna leikara, sálfræðingur þeirra og herforingi, en einn aðalleikari myndarinnar hafi brotnað niður fyrir framan hann eins og smábarn og heimtað að fá að fara heim.
Mannamál eru sem fyrr segir endursýnd í dag og um helgina, en þættirnir eru ávallt frumsýndir á fimmtudagskvöldum klukkan 20:30. Þá má sjá klippur úr viðtalinu inni á hrringbraut.is