"ég lít á þetta sem leik­rit"

Geir Sveins­son, frá­far­andi landsliðsþjálf­ari karla í hand­knatt­leik, seg­ist í sam­tali við mbl.is finn­ast ósann­gjarnt að hann hafi verið lát­inn bíða eft­ir svari frá hand­knatt­leiks­sam­band­inu á meðan rætt hafi verið við aðra þjálf­ara.

Í viðtali við vefinn segir hann  HSÍ hafa haft næg­an tíma til að tjá sér að þeir vildu róa á önn­ur mið áður en nýr landsliðsþjálf­ari, Guðmund­ur Guðmunds­son, var kynnt­ur á blaðamanna­fund: \"Ég lít á þetta sem leik­rit og fer ekki ofan á því. Á ein­hverj­um tíma­punkti fékk ég það svar að beðið yrði eft­ir því að ég myndi leggja skýrslu fyr­ir stjórn­ina. Ég mætti á þann fund en þar er um að ræða skýrslu sem landsliðsnefnd­in fær alltaf eft­ir öll stór­mót. Sem er hinn eðli­leg­asti hlut­ur. Formaður landsliðsnefnd­ar fór fram á að skýrsl­an yrði einnig kynnt stjórn­inni og ég varð að sjálf­sögðu við þeirri beiðni. Ég mætti á fund­inn og flutti skýrsl­una munn­lega og var það í sjálfu sér fínn fund­ur. Í raun­inni eru slík­ir fund­ir alltof sjald­an haldn­ir því á heild­ina litið er skort­ur á slíkri umræðu í hreyf­ing­unni sem og allri framtíðar­um­ræðu. Alltof mikið er horft í bak­sýn­is­speg­il­inn og meira mætti ræða um framtíðina,\" segir í viðtalinu við mbl.is.

Og hann heldur áfram: \"Ég gerði mér grein fyr­ir því að fund­ur­inn myndi ekki skila einu eða neinu í mína þágu, hvað mögu­leika á áfram­hald­andi starfi snerti. Að fund­in­um lokn­um óskaði ég eft­ir því við for­svars­menn stjórn­ar og landsliðsnefnd­ar að svarið við því hvort ég myndi halda áfram sem landsliðsþjálf­ari eða ekki myndi liggja fyr­ir sem fyrst. Ef menn vildu ekki leng­ur mína starfs­krafta þá ættu menn bara að segja það og koma hreint fram, óháð því hvort þær næðu að finna ein­hvern ann­an. Ég benti jafn­framt á að ég væri að fara í frí, sem ég er í núna, og sú tíma­setn­ing tengd­ist vetr­ar­fríi í skól­um. Ég óskaði eft­ir því að heyra frá þeim fyr­ir þann tíma sem gerðist ekki. Eft­ir þann tíma gat ég ein­fald­lega ekki svarað sím­an­um þegar þeim hentaði enda var næg­ur tími fram að því til að til­kynna mér að þeir væru að ræða við ann­an þjálf­ara,“ sagði Geir við vefinn þegar hann fór yfir at­b­urðarrás­ina eft­ir EM í Króa­tíu.