Ég hélt að kerfið myndi vernda mig!

Kona, sem er af erlendu bergi brotin, furðar sig á því að ofbeldismenn séu ekki fjarlægðir af heimilum á Íslandi heldur þurfi þolendur að fara. Hún var í áhrifaríku viðtali í Ríkissjónvarpinu í gærkvöld og lýsti þar ofbeldinu á hendur sér.
 
Þrátt fyrir að sambýlismaður hennar hafi neytt fíkniefna á heimilinu og slegið son þeirra, hafi hann ekki verið fjarlægður af lögreglu. Hún segir í viðtalinu að kerfið hafi brugðist henni og sonum hennar - og fyrir vikið hafi þau mátt búa við áralangt ofbeldi: \"Hann var fíkill og neytti fíkniefna inni á heimilinu. Hann var eitt sinn handtekinn fyrir akstur undir áhrifum, og var þá með son okkar í bílnum,“ segir konan, sem ekki vill koma fram undir nafni barna sinna vegna. „Hann öskraði oft á börnin og einu sinni sló hann son okkar. Við kærðum það til lögreglu og hann viðurkenndi það.“ Þar sem maðurinn vildi ekki fara af heimilinu neyddist konan til að fara með börnin í Kvennaathvarfið: \"Lögreglukona sem ég talaði við sagði að ég þyrfti að fara aftur heim og láta hann lemja mig, þá gæti lögreglan hjálpað mér og fjarlægt hann af heimilinu,“ segir konan við RÚV. Andlegt ofbeldi væri ekki metið eins og líkamlegt ofbeldi.
 

Mæðginin dvöldu í þrjá mánuði í Kvennaathvarfinu, en konan átti ekki fjölskyldu hér á landi, og mátti ekki fara með börnin til heimalands síns án leyfis föðurins. Hún segir að þar hefði maðurinn fengið á sig nálgunarbann og verið fjarlægður af heimilinu, þar sem hann neytti fíkniefna á heimili barnanna og glímdi við alvarlegar geðraskanir.

Hún segist í viðtalinu hafa áhyggjur af öðrum erlendum konum í svipaðri stöðu: \"Ég hélt að kerfið myndi vernda mig. Ég reyndi allt hvað ég gat en ég fékk engan stuðning. Og það er skelfilegt til þess að hugsa, þegar ég hugsa til annarra kvenna af erlendum uppruna, sem eru ekki eins opnar og ég, og tala kannski ekki einu sinni ensku. Hvernig fara þær að? Ég hef miklar áhyggjur af því.“