Ég hef aldrei verið jafn hrædd

„Kæru vin­ir, eins og þið ef til vill vitið rík­ir al­gört neyðarástand hér í Nepal. Hjarta mitt slær með þeim sem eiga um sárt að binda, misst hafa heim­ili og ást­vini. Við misst­um 5 manns í kjöl­farið á jarðskjálft­an­um og 9 slösuðust," skrifar Vilborg Arna Gissurardóttir í áhrifamiklum pistli á Facebook-síðu sinni í dag.


Hún segir alla göngufélaga sína syrgjam látna fé­laga og send­a fal­leg­ar hugs­an­ir til hinna slösuðu. Sjálf sé hún mjög þakk­lát fyr­ir að vera á lífi eft­ir þess­ar náttúru­ham­far­ir. Ef hún hefði verið stödd í tjald­inu sínu þegar flóðin riðu yfir hefði ekki þurft sð spyrja að leiks­lok­um. "Kamp­ur­inn okk­ar er gjörónýt­ur,“ skrif­ar Vil­borg.



Hún segir það hafa verið mikið áfall að koma niður í grunn­búðirn­ar og sjá hvernig þar var um­horfs. "Við vor­um stödd í búðum eitt þegar stóri skjálft­inn varð. Ég lá í tjald­inu mínu að slappa af þegar ég fann titr­ing­inn, ver­andi á skriðjökli stökk ég út til að kanna hvað var um að vera. Erfitt var að átta sig á aðstæðum og fljót­lega fór­um við að heyra í snjóflóðum,“ skrif­ar hún og bætir við: "Við stukk­um inn í tjald og grúfðum okk­ur niður og óskuðum þess heit­ast að það næði ekki til okk­ar. Hjartað sló hratt og ótt­inn var yf­ir­gnæf­andi. Búðirn­ar sluppu og við sát­un eft­ir í stóru púður­skýi, það næsta sem við heyrðum var að ekk­ert væri eft­ir af búðunum okk­ar niðri. Smá sam­an feng­um við fleiri bita í púslu­spilið og mynd­in var skelfi­leg. Það var erfitt að vera fast­ur og geta lítið lagt af mörk­um. Næstu klukku­stund­ir og næsta nótt voru erfið. Ég hef aldrei verið jafn hrædd,“ skrif­ar Vil­borg.


Hún segist hafa komið niður í grunnbúðirnar í gær og að það hafi verið mikið áfall að sjá hvernig var um­horfs: "Staðan í þorp­un­um í kring­um okk­ur er mjög slæmt. Við erum nú að hreinsa um­hverfið okk­ar en ekki er ljóst hvenær við leggj­um af stað til höfuðborg­ar­inn­ar. Við erum skelkuð eft­ir at­b­urði síðustu daga en að öðru leyti hraust,“ segir Vilborg í færslunni