Ragnheiður Ríharðsdóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðismanna sagði á Hringbraut í gær að hún efaðist um að forystumenn Sjálfstæðisflokksin hafi haft hugmynd um að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar og fyrrverandi forsætisráðherra, væri á þeirri skoðun að ekki yrði kosið nú í haust. En Sigmundur sendi bréf til flokksmanna þess efnis í vikunni. “Ég hafði ekki hugmynd um þetta”, sagði Ragnheiður. ´”Ég átta mig ekki á því hvað hann er að segja”, sagði hún. Og vísar til bréfs Sigmundar til flokksfélaga sinna um að mörg verk væru óunnin og óafgreidd í þinginu og ekki sé hægt að kjósa í haut. “Svo eru nú tveir flokkar sem sitja við völd og það er ekkert annar flokkurinn sem segir hinum fyrir verkum”, sagði Ragnheiður. Þingmenn og formaður Sjálfstæðisflokksins hafa gengið út frá því að loforð um kosningar verði innt í haust. Núna eru þingmenn framsóknarflokksins á öðru máli.
“ég hafði ekki hugmynd um þetta”
Fleiri fréttir
Nýjast