Söngkonan María Ólafsdóttir segist vera sátt við frammistöðu sína í Eurovision eftir seinna undanúrslitakeppni söngvakeppninnar í gærkvöldi, enda þótt lag hennar hafi ekki komist áfram - og Ísland verði þar með ekki með á úrslitakvöldinu í Vín á laugardag.
„Fyrir örfáum mánuðum var ég óþekkt stelpa úr Mosfellsbænum sem átti mér drauma en var of feimin til að framkvæma þá. Í kvöld stóð ég upp á stærsta sviði fyrir framan milljónir manna og söng af mér rassgatið fyrir hönd Íslendinga,“ skrifar María á Facebooksíðu sína.
Hún veltir vöngum í færslu sinni og segir þar: "„Hefði ég getað sungið betur? Eflaust, maður getur alltaf gert betur! EN ég labba sátt í burtu frá keppni ég gerði mitt besta þessar 3 mínútur og meira get ég ekki gert. Þeir sem drulla, flott drullið bara yfir mig eða atriðið, mér er sama því ég veit að margir hefðu aldrei geta gert þetta sem ég gerði án alls hroka.“
Hún þakkar vinum sínum fyrir stuðninginn og sendir þeim tóninn sem „drulla yfir" hana á samfélagsmiðlum þar sem nokkuð bar á því að hún hefði verið óörugg á sviðinu, en mikill fjöldi kom henni þó til varnar og kvað hana hafa flutt lagið með mikilli sæmd, rétt eins og Felix Bergsson, lýsandi keppninnar fyrir RÚV komst að orði.
Ég gerði mitt besta í 3 mínútur
Fleiri fréttir
Nýjast