Ég gat ekki hætt í bílabransanum

Konan í karlaheiminum er gestur Mannamáls í kvöld, en þar sest Erna Gísladóttir, forstjóri BL, stærsta bílaumboðs landsins, gegnt Sigmundi Erni og ræðir um lífið og tilveruna, bílabransann og bissnessinn.

Hún segir að það sé ekkert mál að vera kona í jafn karllægum heimi og bílabransinn er, en þó hafi hún auðvitað kynnst ákveðinni stífni og efasemdum í sinn garð þegar hún var yngri og fór með föður sínum, Gísla Guðmundssyni á fundi með kóreskum og japönskum bílahöldum, en þeir hafi margir orðið nokkuð vandræðalegir þegar þeir áttuðu sig á því að þeir ættu að semja við konu.

Hún rekur býsna forvitnilega sögu BL, sem hét í fyrstu Bifreiðar & landbúnaðarvélar, þótt ekkert yrði raunar af innflutningi þess síðarnefnda á fyrstu árum félagsins á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar þegar þeim mun meira var flutt inn af rússajeppum, moskvítsum, volgum, lödum og að sjálfsögðu vodka. Og stundum fundust tómar flöskur af þeim görótta drykk í innfluttu bílunum, tómar að vísu og vandlega drukknar.

Rússaviðskiptin björguðu efnahag Íslands á þessum árum þegar Bretinn hætti að kaupa allan fisk af Íslendingum vegna fyrsta þorskastríðsins - og Erna segir það hafa verið ævintýri líkast að verða vitni að viðskiptaferðunum í austurveg og Íslandsheimsóknum rússneskra bíssnessmanna, enda virtust njósnarar KGB aldrei vera langt undan - og áttu það til að koma upp um sig, svo sem Erna lýsir af innlifun.

Hún ætlaði að hætta í bílabransanum á sínum tíma. En hún gat að ekki, enda alinn upp í þessum sveiflukennda geira sem finnur fyrst fyrir niðursveiflunni og jafn snemma fyrir uppsveiflunni í þeim rússibana sem íslenska hagkerfið er, en það geri hann út af fyrir sig mjög áhugaverðan, að hennar sögn. En aldrei skildi hún fara í pólitík eins og mamma hennar, Bessí Jóhannsdóttir, alltént ekki í framlínuna; það hafi hún ákveðið snemma - og staðið við.  

Mannamál byrjar klukkan 20:30 í kvöld.