Ég fórnaði öllu fyrir að vera ég sjálfur

Tónlstargoðsögnin og mannréttindafrömuðurinn Hörður Torfason gefur allt í samtal sitt við Sigmund Erni í viðtalsþættinum Mannamál á Hringbraut í kvöld, en þá verður seinnihluti viðtalsins sendur út. Fyrri hlutinn fór í loftið fyrir réttri viku.

Í þessum seinni helmingi samtalsins er einkum og sér í lagi fjallað um flótta Harðar frá Íslandi til Danmerkur eftir að hann afréð að standa með sjálfum sér og ræða opinberlega kynhneigð sína, raunar í svo mikilli óþökk almennings á áttunda áratug síðustu aldar, svo og stofnana þess og félaga, að Herði var ekki lengur líft á Íslandi. Hann var svikinn, niðurlægður og úthrópaður um árabil.

Það er einstök upplifun að hlýða og sjá Hörð segja frá þessum myrka kafla Íslandssögunnar þegar litið var á homma og allt hinsegin fólk sem algert úrhrak í samfélaginu sem sjálfsagt þótti að úthúða og lemja á, en Hörður fór ekki varhluta af ofbeldinu - og mátti litlu muna í eitt skipti að hann hlyti ekki bana af.

Það er beinlínis magnað að verða vitni að þvi hvernig Hörður afréð að fórna öllu til þess að fá að vera hann sjálfur.

Samtal þeirra Sigmundar Ernis hefst klukkan 20:30 í kvöld.