Dagur 188 - Persónuleikapróf
Íslensk erfðagreining hefur boðið fólki upp að kanna persónuleika þess að undanförnu. Því ber að sjálfsögðu að fagna og sjálfsagt ágætis tilbreyting frá öllum hinum persónuleikaprófunum á Facebook þar sem gerður er samanburður við löngu látnar leikkonur eða jafnvel hunda og ketti. Að sjálfsögðu fagnaði ég þessu mjög og flýtti mér inn á síðuna en varð fljótt gerð afturreka með persónuleika minn. Ég þurfti fyrst að undirgangast annað próf mun erfiðara, því er ég opnaði síðuna blasti við setningin:
Einungis er hægt að skrá sig inn á þessa síðu með rafrænum skilríkjum.
Ég fór grátandi heim því það er víst búið að svipta mig rafrænu skilríkjunum og ég fæ þau ekki endurnýjuð nema mæta í eigin persónu í kuldann og rokið norður í höfum og brosa fölsku brosi framan í geðillan þjónustufulltrúa einhvers fyrirtækis eða stofnunar. Hvernig á ég nú að vita hversu jafnlynd ég er eða úthverf? Við vitum allt um samviskusemina og þröngsýnina, en ég óttast að mér yrði ákaft fagnað ef ég gengist á hönd samvinnuhreyfingunni.
Ef mínar kæru lesendur vilja vita meira um það hvort ég sé innhverf skapofsamanneskja sem hlusta aldrei á góð ráð mér til handa, þröngsýn með afbrigðum og með einræðistilburði, þá fást þær upplýsingar ekki á Facebook, en ég skal játa bresti mína í samtali undir fjögur augu eða færri með ljósin slökkt.
Í Paradís notum við ekki rafræn skilríki enda eru þau verkfæri djöfulsins.