„Ég fékk í rauninni aldrei að „gleyma“ því að ég væri öðru­vísi“

Á Face­book síðunni Black Lives Matter Iceland má finna frásagnir fólks á því að vera með dökkan húðlit á Íslandi en fjöldi fólks um allan heim hefur mótmælt rasisma síðustu vikur í kjölfar dauða George Floyd í Bandaríkjunum og hafa meðal annars þó nokkrir Íslendingar tjáð sig um málið.

Hin 27 ára gamla Þórunn Lilja er meðal þeirra sem greinir frá reynslu sinni en Þórunn er að eigin sögn svartur blandaður Ís­lendingur þar sem móðir hennar er ís­lensk og faðir hennar frá Gambíu. Hún greinir frá því að hún hafi að­eins verið fjögurra eða fimm ára gömul þegar hún fann fyrst fyrir því að hún leit ekki út eins og aðrir krakkar í kringum sig. „Ég ólst upp í litlum bæ útá landi og fyrir utan mig og yngri systir mína var enginn dökkur,“ segir Þórunn.

„Í grunn­skóla var ég lögð í mikið ein­elti aðal­lega vegna húð­litar míns strax frá 1. bekk og ég fékk í rauninni aldrei að „gleyma“ því að ég væri öðru­vísi en sam­nem­endur mínir, sumir þeirra jafn mikið er­lendir og ég bara hvítir á hörund svo það skiptir ekki máli,“ segir Þórunn. Í færslunni segist hún minnast þess sterk­lega að hafa séð aug­lýsingu fyrir hvíttunar­krem í sjón­varpinu og í kjöl­farið beðið ömmu sína um að fá þannig krem svo hún gæti verið hvít.

Áreiti frá fullorðnum stigmagnaðist

Fjöl­skyldan flutti til Reykja­víkur þegar hún var tólf ára gömul en þrátt fyrir að þar væru fleiri sem litu út eins og hún hafi á­reitið frá full­orðnum stig­magnast. „Þrátt fyrir að bera ís­lenskt nafn og tala af­bragðs ís­lensku virðist fólk ekki taka annað í mál en að ég sé út­lensk eða blendingur,“ segir Þórunn enn fremur og bætir við að fólk hafi ekki tekið það sem gilt svar að hún væri frá Fá­skrúðs­firði.

Þá hafi hún átt erfitt með að vera með öðru­vísi hár og notaði hár­kollur til að vera með eins hár og stelpurnar í kringum sig. „Ég gat ekki labbað í kringlunni án þess að ó­kunnugt fólk labbaði upp að mér og óð með hendurnar í hárið á mér án þess að biðja um leyfi,“ segir Þórunn.

Fáir gangist við rasískri orðræðu

„Ég er að verða 28 ára gömul og fyrst núna er ég farin að taka það í sátt að ég sé svört (það er samt enn­þá dag­leg bar­átta) og að það að vera öðru­vísi þarf ekki að vera slæmt. Er hætt að slétta á mér hárið til þess að falla betur inní hópinn og er farin að tjá mig um þá rasísku orð­ræðu sem er svo sterk hér á landi þó svo að fáir vilja gangast við því.“

„Það að fá að vera partur af hóp eins og þessum, geta tjáð mig og það sé fólk sem skilur hvernig það er að vera svartur á Ís­landi er það sem ég hef þráð lengi! Það að geta frætt sem flesta í leiðinni er stór plús og vonandi skilar það árangri,“ segir Þórunn að lokum.

Frá­sögn Þórunnar í heild sinni og fleiri sögur má nálgast á Face­book síðunni Black Lives Matter Iceland.