Fjöldi frásagna af kynferðislegu ofbeldi streymir inn á Facebook-síðu aðgerðarhópsins Beauty Tips sem hefur skorið upp herör gegn nauðgurum og öðrum þeim sem ganga í skrokk og konum og ungum stúlkum.
Ein þeirra, sem lagt hefur átakinu lið, segir eftirminnilega frá því frá því hvernig hún tók völdin í sínar hendur þegar hún hitti nauðgara sinn í bænum. Konan vildi ekki láta nafns síns getið en hún leyfði vefmiðlinum Stundinni að endurbirta færsluna. Hún segir: "Ég hitti minn böðul á netinu. Hann var um 22ja ára minnir mig og heitir Birgir. Ég var kannski 14 ára. Ég hafði smakkað áfengi í frekar miklu magni um nóttina í heimahúsi og ég hafði sagt honum að ég væri að stelast. Einhverstaðar í minningunni er Wrangler jeppi, Captain morgan flaska og Winston pakki. Seinna man ég eftir tvílitum gluggatjöldum og gífurlegum sársauka og blóði. Hann leiddi mig út daginn eftir og bað mig um að segja mömmu sinni að ég væri 18 ára, ef ég skyldi mæta henni. Minnti mig á að ég hefði viljað þetta. Aftur og aftur. Á meðan ég staulaðist um líkt og einhver hefði sargað í móðurlífið á mér. Einmitt."
Síðan segir konan í færslu sinni: "Ég mætti honum í Smáralindinni nokkrum árum seinna þar sem hann rúllaði barni í vagni með konuna sína upp á handleggnum. Ég sá að honum krossbrá við að sjá mig. Ég fann sigur í því, gekk upp að þeim og heilsaði honum eins og gömlum vin. Snéri mér svo að konunni hans og kynnti mig: "Sæl. Ég er stelpan sem Birgir nauðgaði fyrir nokkrum árum.“ Svo kvaddi ég, og fór.
Öllum þessum meðferðum seinna þá vann ég og skilaði þessari helvítans skömm beint í kokið á honum."
Konur hafa einnig komið fram undir nafni til að deila álíka reynslusögum og þeirri sem hér að ofan greinir. Þannig segist fjölmiðlakonan Þóra Tómasdóttir í opinni færslu á Facebook styðja rétt þolenda til að segja frá og upplýsir í leiðinni "að maðurinn sem á pappírum til er skráður faðir barnsins míns réðist á mig ólétta og lamdi mig,“ skrifar Þóra á síðu sína.
Aðgerðarsíða Beauty tips hópsins á Facebook er lokaður vettvangur fyrir fórnarlömb kynferðisofbeldis sem vilja deila reynslu sinni með öðrum þeim sem þolað hafa ofbeldi af þessu tagi. Stjórnendur síðunnar íhuga nú að birta nöfn þeirra sem sagðir eru hafa nauðgað konum sem koma við sögu á síðunni, ýmist þeirra sem hafa hlotið dóm fyrir verknaðinn eða allra þeirra sem eru grunaðir um slíkan verknað, en ákvörðun í þessa veru, sem kann að þýða dómsmál á hendur forráðamönnum síðunnar vegna ærumeiðinga, hefur enn ekki verið tekin.