Það er farið út og suður í heldur óvenjulegu spjalli þeirra Þórunnar Jörlu Valdimarsdóttur og Sigmundar Ernis í Mannamáli kvöldsins, en óhætt er að segja að þar fari sagnfræðingurinn og rithöfundurinn úr Hlíðunum á dágott flug.
Hún lýsir uppeldi sínu með einstæðri móður og hluta systkina sinna, en líka sambandinu við föður sinn sem var það virtur flugumsjónarmaður að við hann er viðmiðunarpunktur í Atlantshafi kenndur. Og hún talar um manninn sinn sem féll svo óvænt frá að morgni Gamlársdags fyrir fáum árum, en samband þeirra var sérstakt og merkilegt. Og svo kemur líka við sögu tíminn sem hún bjó með Megasi, á því skeiði í lífi listamannsins sem margir landsmenn héldu að hann væri ekki lengur á meðal vor - og svo ræðir hún vitaskuld bókaskrifin, ljóðin og sögurnar, en ævisaga Skúla Magnússonar er að koma út á næstu dögum, skrifuð af henni af því hún vildi rétta hlut hans í sögunni, sem er jú svo mikilvægt að sagnfræðingar geri, að setja einmitt hlutina í rétt samhengi.
Hún segist vera skrýtin, maður eigi að kalla hlutina réttum nöfnum; hún sé ekki sérstök, heldur skrýtin. Og það sést á viðtalinu.
Mannamál byrjar klukkan 20:00 í kvöld.