María ósk: „ég er sek um að hafa beitt ein­elti“

María Ósk Óskars­dóttir, sveitar­­­stjórnar­full­­­trúi í Vestur­byggð og leið­beinandi í Pat­reks­skóla, ræðir opin­skátt um ein­elti sem hún beitti sam­starfs­konu sína í skólanum á Face­book síðu sinni. „Ég er ekki stolt af því en gengst við því,“ segir María.

Tveir menntaðir starfs­menn Pat­reks­skóla sögðu upp störfum vegna meints ein­eltis Maríu í fyrra. Fimm manna hópur kennara og leið­bein­enda fór í kjöl­farið á fund fé­lags­­mála­­stjóra Vestur­byggðar og kvartaði undan fram­komu hennar.

„Ég er sek um að hafa beitt ein­elti, með því að hunsa. Ég er sek um það að vera mann­leg og hafa látið til­finningar mínar í per­sónu­legu máli stjórna mér á mínum vinnu­stað.“

Nánasta fjöl­skylda við­loðin við málið

María segir ein­eltis­málið tengjast hennar nánustu fjöl­skyldu og erjum innan hennar. „Ég verð að viður­kenna að ég lét til­finningar mínar í garð mágs míns, Gísla Ás­geirs­sonar, bitna á sam­býlis­konu hans.“ Sam­býlis­kona Gísla starfaði í Pat­reks­skóla á­samt Maríu en hún segir þær hafa reynt að um­gangast hvor aðra sem minnst.

„Ég heilsaði henni ekki, ég gekk í burtu þegar hún settist inn á kaffi­stofuna, ég treysti mér ekki til þess að vera ná­lægt henni og hafði ekki á­huga á að vera í sam­skiptum við hana frekar en hún hafði á­huga á að vera í sam­skiptum við mig.“

Hefur enga á­minningu fengið


Ein­elti­s­teymi Vestur­byggðar fram­kvæmdi rann­sókn á málinu og birti þeim sem málið vörðuðu niður­stöður skýrslunnar í maí á síðasta ári. Kennarinn sem sakaði Maríu um ein­elti óskaði eftir því að málið yrði endur­skoðað og sagði lög­maður hennar í sam­tali við Frétta­blaðið að hún hyggðist leita réttar síns gagn­vart sveitar­fé­laginu.

„Ein­hverjir virðast halda að hægt sé að leggja fram kæru á hendur mér sem séu til þess fallnar að mér verið sagt upp störfum við skólann. Það eru al­rangar upp­lýsingar, ég sinni mínum störfum af heilindum bæði sem kennari og bæjar­full­trúi og hef enga á­minningu fengið fyrir mín störf.“

Tíma­bundið leyfi vegna málsins

María óskaði þó ný­lega eftir tíma­bundnu leyfi frá störfum í sveita­stjórninni á meðan málið gengur yfir. „At­burðir síðast­liðinnar viku hafa haft djúp­stæð á­hrif á mig, eigin­mann minn, börnin okkar fjögur og fjöl­skyldur okkar beggja.“

Í lok færslunnar óskar María mág sínum og fjöl­skyldu hans alls hins besta. „Um leið og ég vona að þeim á­rásum sem ég hef orðið fyrir af hálfu Gísla ljúki.“