\"Ég er reiður. Ég verð sjaldan reiðari en þegar illa er komið fram við gamla fólkið. Hvað þá þegar brotið er á gamla fólkinu. Og sérstaklega þegar Ríkið brýtur á gamla fólkinu.\"
Þetta skrifar einn reyndasti útvarpsmaður landsmanna, heimir Karlsson, umsjármaður Bítisins á Bylgjunni á fésbók sína í tilefni af fréttum gærdagsins um bága stöðu á hjúkrunarheimilum landsins sakir fjárskorts, en boðað hefur verið til neyðarfundar á föstudag um málefni heimilanna.\"Skömm sé ykkur öllum sem berið ábyrgð á því að hafa ekki enn gengið frá þjónustusamningi við hjúkrunarheimilin,\" skrifar Heimir áfram og minnir að að hér er um lögbundna skyldu ríkisvaldsins að ræða.
\"Og hver skyldi afsökunin vera,\" spyr útvarpsmaðurinn - og svarar því til að það séu jú peningar, en það sé aftur á móti óþolandi svar: \"Það eru til peningar, það er aðeins spurning hvernig þeir eru notaðir,\" skrifar Heimir áfram og bætir við: \"Ef ekki verða settir peningar í þetta NÚNA, þá bitnar það á þjónustunni, sem sagt gamla fólkinu sem þarf á henni að halda!\"
Hann vitnar í frétt á Rúv þar sem fram kemur að ... \"í síðasta mánuði þurftu stjórnendur heimilanna að fara þess á leit við ríkið að það greiddi janúargreiðslu til heimilanna fyrirfram svo hægt væri að greiða út laun um áramótin.\"
\"Hverslags er þetta,\" spyr Heimir: \"Ég segi aftur; skammist ykkar sem haldið utan um þessi mál fyrir okkur hin, þið sem vinnið fyrir okkur. Við eigum að bera virðingu og hugsa vel um aldraða. Kippið þessu í liðinn!\"
Og hann tekur fram í lokin að hvvorki foreldrar hans né tengdaforeldrar dvelji á hjúkrunarheimili eða þurfi þess með, a.m.k. ekki eins og sakir standi.