Ég er mannleg en ekki fullkomin!

\"Ég er fullkomlega mannleg en ekki fullkomin\" sagði Auður Bjarnadóttir ballettdansari og yogakennari í þættinum Fólk með Sirrý á Hringbraut á miðvikudagskvöld. Þar var fjallað um kulnun í starfi og fólk sagði reynslusögur af því að sigla í strand, vinna of mikið og þurfa að breyta um lífsstíl.

Auður sagði að hún hefði sem ballerína frá unglingsaldri alltaf glímt við fullkomnunaráráttu og alltaf verið dugleg en átt að gera betur. Þegar hún hóf svo að leikstýra líka ásamt því að vera með heimili og börn þá komst hún í þrot með sjálfa sig og sótti sér aðstoð fagfólks og endurskoðaði líf sitt: \"Það getur verið gjöf að ganga á vegg. Þá þarf maður að gefast upp og finna aðrar leiðir,\" sagði Auður sem nú þekkir mörk sín mun betur og tekst á við álag með öðrum hætti. Hún er nú að opna nýtt yogastúdíó og nýtir sér yoganitra og fleiri aðferðir yoga og núvitundar til að vera í jafnvægi. 

Í þættinum sagði Margrét Grímsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsusstofnuninni í Hveragerði, líka frá reynslu sinni af kulnum. Einn daginn hreinlega stoppaði hún og komst ekki áfram og leitaði sér aðstoðar fagfólks og hóf endurskoðun á lífi sínu. Margrét fann leiðir til að efla sig að nýju og hefur nú miklu að miðla í starfi sínu í Hveragerði. Þangað koma fjölmargir til að byggja sig upp eftir kulnun. Aðspurð um hverjir verði helst fyrir kulnun segir Margrét að það ráðist af persónueinkennum, \"þetta er oft fólk með mikinn metnað og fólk sem á erfitt með að setja mörk. Það er ákveðin meðvirkni einkennandi hjá þessu fólki. Margir þeirra starfa líka í ummönnunarstörfum svo sem hjúkrun, kennslu, löggæslu. En einnig koma bankamenn og fleiri á HNLFÍ í Hveragerði vegna kulnunar\".

Þáttinn er hægt að nálgast í heild sinni eða að hluta á hringbraut.is.