Aldís Baldvinsdóttir tók í dag þátt í málþinginu „Aðgát skal höfð“. Þar fjallaði hún um ólíkt aðgengi hennar og föður hennar, Jóns Baldvins Hannibalssonar. Aldís hefur sakað Jón Baldvin um að hafa nauðungarvistað hana á geðdeild í kjölfar ásakananna um að hann hafi beitt hana kynferðisofbeldi. Sagði hún föður sinn hafa mátt þola valdníðslu í 27 ár fyrir að segja sannleikann. Vefur Fréttablaðsins fjallar ítarlega um málið í dag.
Jón Baldvin hefur neitað að hafa beitt dóttur sína ofbeldi. Þá hefur á þriðja tug kvenna sakað Jón Baldvin, um kynferðislegt áreiti og kynferðislegt ofbeldi. Aldís sagði að hún myndi segja sannleikann með glöðu geði og bætti við:
„ ... því það fæ ég ekki sannað, nema að sanna sök á valdníðingnum, sem að svo sorglega vill til er faðir minn, svokallaður.“
Í febrúar á þessu ári stigu 23 konur fram og sökuðu Jón Baldvin um ofbeldi. Jón reyndi að færa rök fyrir því að Aldís hefði á einhvern hátt kúgað konurnar til að ljúga upp á hann. Jón Baldvin var fyrir mörgum árum einnig uppvís að því að senda klámfengin og svæsin bréf á Guðrúnu Harðardóttur frænku sína þegar hún var unglingur og lýsti þar kynlífi sínu og Bryndísar. Segir Aldís að oft þegar það mál hafi verið rætt að færa talið að „meintri geðveiki hennar.“ Aldís sagði:
„Ég er sum sé hin illræmda Aldís, ef marka má þann fagnaðarboðskap sem umræddur ákærandi hefur síðustu mánuðina stritað við að breiða út um dóttur sína, mig. Að ég í almætti mínu hafi kúgað 22 konur til að ljúga upp á hann kynferðisglæpum .“
Þá gagnrýndi Aldís aðgengi Jóns Baldvins að fjölmiðlum. Hann hefði fengið tugi viðtala á sama tíma og hún hefði getað talið sín á fingrum annarrar handar. Einnig gagnrýndi Ásdís stjórnvöld harðlega. Ásdís spurði svo:
„Kæru Íslendingar, búum við í höfðingjasleikjuveldi?“
Hér má lesa umfjöllunina í heild sinni.