Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, segist hafa áhyggjur af viðbrögðum gegn Parísarmorðunum, bæði utan landsteinanna sem innan. Hún sagði í sjónvarpsþættinum Kvikunni á Hringbraut í gærkvöld að hún sæi fram á að baráttan nú myndi að hluta snúast um að tryggja friðhelgi einkalífs og viðhalda mannréttindum, það ætti ekki síst við um rafheima. Nú þegar væru vísbendingar um afturhvarf í þeim efnum. Eitt það mikilvægasta væri mantran: „Ég er ekki hrædd!“
„Við megum ekki láta óttann stjórna okkar,“ sagði Birgitta og nefndi að það fegursta sem hún hefði séð í viðbrögðum til þessa væri þegar fólk hefði beislað orku sína inn í kærleikann.
Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður BF, ræddi einnig pólitík og viðbrögð við hryðjuverkum í þættinum. Hún taldi líkur á að sumir flokkar myndu notfæra sér ógnina og óttann sem fylgi afleiðingum hryðjuverkanna í París. Berjast verði gegn því. Óttahræðslan sé fyrir hendi og hægt sé að spila á hana í atkvæðaveiðum.
Báðar töldu þinkonurnar of snemmt þó að spá fyrir um pólitísk áhrif eftir hina hryllilegu atburði.
„Stærsta verkefnið er að berjast gegn ógninni hryðjuverkum og svarið muni ekki felast í að sperngja allt upp,“ sagði Brynhildur og hrósaði forseta Íslands fyrir hans viðbrögð og ummæli.