Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra var gestur Þjóðbrautar í morgun. Hún er sögð verklítil og að hafa ekki nýtt þau tækifæri sem hún hefur fengið.
Ragnheiður Elín neitar þessu en segir að náttúrupassamálið hafi dregið upp af sér skakka mynd. Hún segir á því þingi, sem rætt var um náttúrupassann, hafi hún flutti sautján þingmál og af þeim hafi fjórtán verið samþykkt.
Ragnheiður Elín nefndi nokkur mál, svo jöfnun húshitunarkostnaðar og fleira.
„Ég er brussa og vil að hlutirnir gangi hratt fyrir sig,“ sagði Ragnheiður Elín. Hún segir að hún hafi gert það sem að henni snýr varðandi álverið í Helguvík, ekkert hafi stöðvast á hennar borði.
„Ég er kannski ekki nógu dugleg að tala um það sem ég geri.“