Óskar Hrafn Þorvaldsson er fyrrverandi þjálfari karlaliðs Gróttu í fótbolta. Grótta kom gríðarlega á óvart í sumar og tryggði sér sæti í úrvalsdeild karla í fyrsta skipti í sögu félagsins. Óskar var í kvöld valinn þjálfari ársins. Margir vildu sjá að Rúnar Kristinsson yrði fyrir valinu en hann hlaut ekki einu sinni tilnefningu. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Óskar er vel að titlinum kominn en Gróttu tókst að komast upp um tvær deildir á tveimur árum og var spáð níunda sætinu. Aðrir sem voru tilnefndir voru Patrekur Jóhannesson, fyrrum þjálfari karlaliðs Selfoss í handbolta og Alfreð Gíslason.
Óskar Hrafn sagði í ræðu sinni að hann hefði ekki búist við þessu og taldi að annað hvort Alfreð eða Patrekur yrðu fyrir valinu, þá sérstaklega í ljósi þess að hann sjálfur væri óreyndur þjálfari. Óskar Hrafn sagði meðal annars í ræðu sinni.
„Ég ætla að þakka konunni fyrir að hafa þola mig. Ég er mjög erfiður maður.“
Hann bar síðan mikið lof á bæði Alfreð og Patrek.