Formaður Viðreisnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, segirst eiga erfitt með að sjá að Samfylkingin hafi breytt um stefnu.
Þetta kemur fram í nýjum skoðanapistli hennar í Fréttablaðinu í dag.
Þorgerður Katrín segir ekki hafa farið framhjá sér fremur en öðrum að innan Samfylkingarinnar jafnt sem utan hennar séu skiptar skoðanir um það hvort aðild að Evrópusambandinu séu enn á dagskrá flokksins.
„Óvissan stafar af því að í samþykktum landsfundar Samfylkingarinnar er ítrekuð sterk og afdráttarlaus afstaða með aðild og þjóðaratkvæði, en nýr formaður hefur hins vegar tilkynnt að hún muni ekki flytja það mál,“ segir Þorgerður Katrín jafnframt í skoðanapistli sínum og bætir við að velferðarmálin muni taka allan umræðutíma Samfylkingarinnar næstu árin.
Að sögn Þorgerðar Katrínar verður Viðreisn eini flokkurinn sem setur aðild að ESB á dagskrá við myndun næstu stjórnar. „Til að styrkja þá málefnastöðu bjóðum við Evrópusinna í öllum flokkum velkomna.“
Hún segir aðild að ESB veigamikinn þátt í lausninni á vanda velferðarkerfisins næsta áratug.
Hægt er að lesa pistil Þorgerðar Katrínar í heild sinni hér.