Ég á enga samleið lengur með flokknum

Jórunn Frímannsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir það útspil ríkisstjórnarinnar að afhenda Evrópusambandinu bréf um slit á aðildarumsókn Íslands,framhjá þingi og þjóð, vera svik á þeim sáttum sem boðin voru Evrópusinnuðum flokksmönnum Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu kosningar.  Þetta kom fram í þættinum Heimsljós sem sýndur var á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld. 


Jórunn segist enga samleið eiga með Sjálfstæðisflokknum eftir þessi augljósu svik - og ætlar að margir sjálfstæðismenn hugsi sér til hreyfings eftir framkomu forystu Sjálfstæðisflokksins sem hafi orðið ber að algerum svikum í Evrópumálunum.


Jórunn vakti mikla athygli á mómætafundi á Austurvelli síðastliðinn sunnudag þar sem hún sagði frá samtali sem hún átti við Davíð Oddsson, helsta áhrifamann Sjálfstæðisaflokksins, uppi í Hádegismóum núverið, þess efnis hvort flokkurinn gæti ekki fundið málamiðlum í Evrópumálum svo ekki verði af fjöldaúrsögnum úr flokknum. Davíð hafi tekið erindi hennar svo fálega að þegar hún gekk af fundi hans ráðlagði hann henni að flýja yfir til Samfylkingarinnar.


Heimildir Hringbrautar herma að forsvarsmenn Viðreisnar vinni nú að því að stofna nýjan stjórnmálaflokk til höfuðs Sjálfstæðisflokknum og mun vera afráðið að bjóða fram í næstu alþingiskosningum.