Eftirspurnin allt að hundraðföld

\"Eft­ir­spurn­in er marg­falt meiri en fram­boðið. Ef hús­næði er aug­lýst til leigu á sann­gjörnu verði er eft­ir­spurn­in þrjá­tíu- til hundraðfalt meiri en fram­boð,“ segir Svanur Guðmundsson leigumiðlari hjá húsaleiga.is.

Rætt er við Svan í Morgunblaðinu í dag í ítarlegri umfjöllun þess um leigumarkaðinn á höfuðborg­ar­svæðinu. \"Fólk hef­ur gef­ist upp á að fá hús­næði leigt. Leigu­verðið er yf­ir­leitt það hátt að fólk ræður ekki við það,\" segir hann jafnframt. \"Leigumiðlun er að leggj­ast af. Leigu­sal­ar finna leigj­end­ur á Face­book og leigja þeim milliliðalaust. Leigu­sal­ar stjórna markaðnum. Marg­ir þeirra virða hvorki upp­sagn­ar­frest né húsa­leigu­lög.“

Svanur gagnrýnir að húsaleiga skerði eillífeyrisgreiðslur. Því fái eldra fólk lítið sem ekkert fyrir að leigja út ónotað húsnæði. Þetta þurfi að laga til að auka framboð leiguhúsnæðis.

Í blaðinu segist Jóhann Már Sigurbjörnsson formaður Samtaka leigjenda á Íslandi vera nýbúinn að taka íbúð á leigu. Hann hafi upplifað það þrisvar að keppa við 50 aðra umsækjendur um íbúð. 

Fram kemur að straumur erlendra ríkisborgara til landsins auki eftirspurnina.