Eftirspurn eftir vinnuafli

Mikil eftirspurn eftir vinnuafli hefur fram að þessu ekki skilað sér í auknum verðbólguþrýstingi nema að litlu leyti. Það skýrist að hluta til af styrkingu krónunnar en að verulegur leyti af miklum innflutningi erlends vinnuafls sem hefur aukið framleiðslugetu þjóðarbúains. Frá þessu segir á vef Hagstofiu Íslands og í Hagsjá sem Landsbanki Íslands gefur út.

Landsmönnum fjölgaði um 5.800 milli 1. ársfjórðungs 2016 og 2017. Stór hluti af fjölguninni skýrist af miklum innflutningi fólks til landsins. Þannig fjölgaði erlendum ríkisborgurum með búsetu hér á landi um 3.800 manns frá 1. ársfjórðungi 2016 til sama tíma 2017. Erlendir ríkisborgarar voru um 9,3% íbúa hér á landi á fyrsta ársfjórðungi 2017. Þair voru 8,3% á sama tíma í fyrra.

Atvinnuþátttaka er mjög há í sögulegu samhengi og var 84,7% af heildarmannfjölda á vinnualdri  í mars. Hlutfall starfandi í mars var 83,4%. Að sama skapi hefur atvinnuleysi minnkað verulega og var aðeins 1,7% í mars. samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Meðalatvinnuleysi hefur ekki mælst lægra á Íslandi frá því í árslok 2008.

rtá

Nánar www.landsbankinn.is    www.hagstofa.is